Haust og vetrar lína Carin Wester er ansi girnileg fyrir mig að sjá. Ég valdi mín uppáhalds dress sem sýnd voru á sýningarpöllunum og skildi hitt eftir sem ég var alls ekkert að fýla. 

Þið getið skoðað allt showið í myndum á síðu Berns: http://www.fashionweekbyberns.com/
Carin Wester AW10
 
Ég hef lengi ætlað að pósta hér mynd af Scorett skóm sem eru algjör eftirlíking af skóm Alexanders Wang:
Picture
Scorett: 799SEK
Upprunalegu Wang skórnir líta svona út: 
Að mínu mati nokkuð góð eftirlíking hjá Scorett í þetta skiptið, en sú verslun er mjög dugleg við það að copy-a eftir háklassa hönnuðum undir sínu eigin merki, Tiamo.
 
Fashion against aids 2010 er heitið á nýjasta collectioni H&M sem væntanlegt er í búðir 20. maí. Þetta er þriðja árið sem H&M fer af stað með þesskonar herferð og mun 25% af allri sölu renna til HIV/AIDS verkefna. 
Vörurnar verða seldar undir merkinu Diveded og verður vöruúrvalið breytt - í boði verða fötfylgihlutirtjöldsvefnpokar eða annað..Þitt er valið!!
Picture
Picture
Picture
Picture
Picture
Picture
Picture
Línan er hönnuð með festival þema í huga og kemur nokkuð vel út að mínu mati. Glatiador sandalar, Maxi kjólar, biker jakkar, rifnar gallabuxur og fleira fínerí er meðal þess sem í boði verður.
 
Ég neyta því ekki að ég er bara svolítið spennt og er strax búin að ákveða hvað mig langar í og hvað ekki.

 
 
Síðasta helgi var vel heppnuð í alla staði.
Ég: naut mín í sól og hita með Gunnanum og Ölbunni, tjúttaði örlítið með sætu Pöttru, hitti ömmu og afa sem komu óvænt í dagsheimsókn, fór með þeim á handboltaleik þar sem mitt lið vann og tryggði sér sæti í undanúrslit, endaði helgina á dýrindis grillmat heima hjá Erlu og Jónasi.
Gat ekki verið betra !!

 
Sit hér úti á svölunum heima hjá mér og reyni að sóla mig aðeins í blíðunni - Það er svo sannarlega hægt að segja að sumarið sé komið. Ég ætla sko að njóóta ...
Picture
Eigið þið góðan dag öll sem eitt, xxxx
 
Picture
Picture
Picture
Picture
Picture
Picture
Picture
Picture
CheapMonday - Fall10
 
Í síðustu viku hélt ég upp á fyrsta afmæli dóttur minnar.
Það er hreint út sagt ótrúlegt þar sem tíminn hefur flogið svo hratt síðan að hún kom í heiminn.
Að fylgjast með litla gullinu mínu vaxa og dafna er besta tilfinning sem til er. Þetta ár hefur verið það besta í mínu lífi hingað til og fá ekki orð því líst hversu lánsama ég tel mig vera. 


Á afmælisdaginn var allt gert til að hafa daginn sem bestan fyrir Ölbuna. * Góður morgunmatur
* Fyrsta kakan með kerti ofan á
* Fyrstu afmælispakkarnir
* Sundferð
* Róló
* Gefa öndunum brauð 
* Lesið bækur 
* Leikið með nýja dótið 
Mikið af kærleik knúsi og kelerí var það sem einkenndi þennan fyrsta afmælisdag.
Picture
Um páskahelgina var svo haldin fyrsta afmælisveislan. Við vorum svo heppin að vera með eitt stykki afa og ömmu, frænkur og frændur í heimsókn yfir páskana sem gerði það að verkum að afmælið var ekki svo tómlegt miðað við að búa í útlöndunum.
Picture
Takk fyrir okkur !
 
Ég get ekki beðið !!!!
Á því að signa mig inn á facebook sá ég að fleiri eru á sama máli.

Ég hef horft á seríurnar fram og aftur í mörg ár.

Ég fór þrisvar á mynd nr. 1 í bíó. 
Ég keypti mynd nr. 1 um leið og hún kom í sölu.
Og ég hef horft á mynd nr. 1 í stofunni heima hjá mér aftur og aftur og aftur og fæ ekki leið á henni ...
Það er eins gott að mynd nr. 2 standist mínar miklu væntingar !!
Það sem setur punktinn yfir i-ið á þennan flotta vinkonuhóp eru dressin. Þær eru allar svo ólíkar en hver og ein með sinn eigin stíl.
Vel unnið verk hjá hinni virtu Patriciu Field stílista þáttanna.

Uppáhalds atriðin mín í mynd nr. 1:

Nú er bara að bíða aaðeins lengur ...


Góða helgi kæra fólk !!
 
Þar sem sólin skein svo skært í gær notaði ég ein af nýju sólgleraugunum mínum í fyrsta skiptið. Þessi keypti ég í Gina Tricot á mjög fínu verði. Á án efa eftir að nota þau heilmikið næstu mánuði.
Picture

Dress dagsins: 
Jakki: H&M(old)
Bolur: WeekDay, 200SEK
Stuttbuxur: Beyond Retro, 300SEK
Hjólabuxur: Klipptar sokkabuxur
Skór: Vagabond, 650SEK
Alban: 
Peysa: H&M
Bolur: H&M
Leggings: Kappahl
Skór: MiniShop
Húfa: Börn Náttúrunnar
 
Hér er sól og hiti !!
Það gleður mitt litla hjarta. MIKIÐ!
Nú tel ég að sumarið sé, í það minnsta, að nálgast óðum.
Eigið mikið góðan dag !!
Það ætla ég að gera ...