Síðustu búðardögum hef ég að miklu leyti eytt í ung ung barnadeildum H&M, Lindex og fleiri sænskum búðum.


Ástæðan er sú að ég var svo heppin að eignast tvo glænýja vini sem drifu sig í heiminn tveimur mánuðum fyrir tímann. Þau eru alveg gullfallegir píínulitlir nýjir einstaklingar sem nota fatanúmer í mikilli mínusstærð og Ó hvað það er nú gaman að gleyma sér í róteríi í þeirri deild í búðunum. Hvað þá þegar maður hefur færi á að velja á tvö stykki.
Stelpu OG strák !! 

Eftir erfitt val sit ég nú og pakka því sem ég keypti inn í tvo litla pakka. Einn bláan og annan bleikan til þess að senda á "klakann" góða.


Til hamingju elsku nýbakaða fjölskylda :x
Erna Hrund
7/18/2010 05:33:26 am

Yndislegt!***

Reply
Brynja og tvíburarnir :)
7/19/2010 08:12:39 pm

Æii takk fyrir roosalega fallegt og skemmtilegt blogg** :)
Tvíburarnir báðu mikið að heilsa þér í gær og senda þér knús*
Einnig sendi ég þér auðvitað aaaðeins stærra knús :D

-Þín,
Brynja

Reply



Leave a Reply.